Tónlistarskólinn í Reykjavík

Skipholti 33 - 105 Reykjavík - sími: 553-0625 - tono@tono.is

Ađalsíđa
Skólinn
Dagatal
Námiđ
Tenglar
Viska

Ýmsir viđburđir á áttugasta starfsári Tónlistarskólans í Reykjavík

Íslensk tónlist í Norrćna húsinu

Tónleikar međ verkum eftir íslensk núlifandi tónskáld voru haldnir í Norrćna húsinu ţann 6. febrúar og voru ţetta ţriđju opinberu tónleikarnir á vegum Tónlistarskólans í Norrćna húsinu á ţessu skólaári. Efnisskráin var fjölbreytt og mátti ţar finna verk eftir 12 tónskáld flutt af 28 nemendum í hinum ýmsu samspilshópum. Afar góđ mćting var á tónleikana og sérstaka ánćgju vakti hversu mörg tónskáldanna voru viđstödd.

Öskudagsbasar á bókasafni Tónó

Vegna fyrirhugađra flutninga var ákveđiđ ađ grisja safnkostinn í Bókasafni Tónlistarskólans og í kjölfariđ var haldinn basar ţar sem gestum og gangandi bauđst ađ kaupa nótur, tónlistarbćkur og geisladiska á lágmarksverđi, auk ţess sem hćgt var ađ prútta. Léttur andi og skemmtileg stemning ríkti á bókasafninu ţennan dag og öđluđust gamlar tónlistarbćkur nýtt líf í höndum nýrra eigenda. Ágóđinn verđur notađur til uppbyggingar á bókasafninu eftir flutningana í Skipholt 33.

Ungir einleikarar međ Sinfóníuhljómsveit Íslands

Fimmudaginn 14. janúar komu tveir nemendur Tónlistarskólans í Reykjavík, Helga Svala Sigurđardóttir og Matthías I. Sigurđsson, fram međ Sinfóníuhljómsveit Íslands í kjölfar ţess ađ ţau sigruđu einleikarakeppni Sinfóníuhljómsveitarinnar og Listaháskóla Íslands sem haldin var í nóvember. Helga Svala lék flautukonsert eftir Jaques Ibert og Matthías lék klarinettukonsert nr. 2 eftir Carl Maria von Weber. Bćđi stóđu ţau sig međ miklum glćsibrag og óskar Tónlistarskólinn ţeim til hamingju međ árangurinn.

Píanónámskeiđ á Stokkalćk

Dagana 2. og 3. janúar hélt Víkingur Heiđar Ólafsson píanóleikari námskeiđ í Stokkalćk fyrir átta píanónemendur úr Tónlistarskólanum í Reykjavík. Nemendurnir nutu góđs af frábćrri ađstöđunni í Stokkalćk ţessa daga og hafđi hver sitt hljóđfćri til umráđa. Ţátttakendur sóttu masterklassa hjá Víkingi sem voru opnir almenningi og lauk námskeiđinu međ tónleikum. Tónlistarskólinn ţakkar Ingu Ástu og Pétri Hafstein, húsráđendum á Stokkalćk, og Víkingi Heiđari kćrlega fyrir ánćgjulegt samstarf.