t

 

kontrabassasnigill

 

Trompet

 

Klarinett

 

horn.fidla

 

 

Fréttir og viðburðir

Tilkynning frá bókasafninu: Vinsamlegast skilið því sem þið eruð með í láni fyrir 25. maí. Bókasafnið er opið mánud.-fimmtud. kl. 16-18 en einnig má skila á skrifstofuna.

ÓPERA Þriðjudaginn 24. apríl næstkomandi munu nemendur Tónlistarskólans í Reykjavík flytja tvær óperettur í Iðnó. Annars vegar er það “Falinn fjársjóður”, hálftíma löng óperetta eftir Offenbach og hins vegar “Tónlistarskólinn” eftir Þórunni Guðmundsdóttur, ný óperetta sem samin var sem forspil að óperettu Offenbachs. Flytjendur eru 14 söngvarar og 14 manna hljómsveit úr Tónlistarskólanum í Reykjavík. Stjórnandi er Tryggvi M. Baldvinsson og leikstjóri Þórunn Guðmundsdóttir.

Verkið fjallar um tónlistarskóla sem er í svo miklu fjársvelti að skólastjórinn er að missa trúna á tónlistinni og gildi hennar. Þegar nemendurnir verða þess áskynja ákveða þeir að hressa hann við og koma skólanum á kortið með því að setja upp óperu eftir Offenbach. Við fylgjumst með ástarflækjum og framapoti innan skólans og loks sjáum við uppfærsluna á “Földum fjársjóði” þar sem ýmislegt óvænt kemur upp á, en allt fer þó vel að lokum.

Sýningar verða einungis þrjár talsins (24., 25. og 26. apríl). Sýnt verður í Iðnó og hefjast sýningarnar kl. 20.00 öll kvöldin. Miðar eru seldir á www.midi.is og við innganginn.

Nótan 2012 Handhafi Nótunnar 2012 er strengjakvartett frá Tónlístarskólanum í Reykjavík. Nótan, uppskeruhátíð tónlistarskólanna var haldin um helgina. Þar komu fram fulltrúar frá fjölmörgum tónlistarskólum. Níu atriði fengu sérstaka viðurkenningu, þar á meðal strengjakvartett frá Tónlistarskólanum í Reykjavík. Þá valdi dómnefnd eitt atriði sem þótti skara fram úr og hlaut að launum verðlaunagripinn Nótuna. Þetta var strengjakvartettinn, sem er skipaður:

Sólveigu Steinþórsdóttur á fiðlu,
Nínu Leu Z. Jónsdóttur á fiðlu,
Rannveigu Mörtu Sarc á víólu og
Geirþrúði Önnu Guðmundsdóttur á selló

Við óskum þeim hjartanlega til hamingju með þennan sigur!

Einleikaraprufuspil TR fór fram föstudaginn 12. mars. Það voru Rakel Edda Guðmundsdóttir söngvari og Sölvi Kolbeinsson saxófónleikari sem sigruðu og munu þau koma fram með HTR á haustönn 2012.