kontrabassasnigill

 

Trompet

 

Klarinett

 

horn.fidla

 

 

Kennarar


Berglind Stefánsdóttir, þverflauta

BerglindStefánsdóttir Berglind Stefánsdóttir steig sín fyrstu skref í tónlistarnámi við Tónlistarskóla Skagafjarðar. Þaðan lá leiðin í Tónlistarskólann í Reykjavík þar sem kennarar hennar voru Bernharður Wilkinson og Hallfríður Ólafsdóttir. Hún lauk blásarakennaraprófi vorið 2004 og starfar nú sem flautukennari við Skólahljómsveit Kópavogs, Tónlistarskólann í Reykjavík og Tónlistarskóla Reykjanesbæjar. Berglind hefur sótt námskeið og einkatíma erlendis, m.a. hjá William Bennett, Dennis Bouriakov, Philipe Bernold, Julien Beaudiment, Toke Lund Christiansen og Cecilie Løken. Berglind er virkur þátttakandi í íslensku tónlistarlífi og hefur t.d. leikið með Sinfóníuhljómsveit Íslands, Blásaraoktettinum Hnúkaþey, Blásarasveit Reykjavíkur og komið fram á Myrkum- og Norrænum músíkdögum og sumartónleikum á Gljúfrasteini. Hún er meðlimur í Íslenska flautukórnum sem kemur reglulega fram á tónleikum og hefur sérhæft sig í flutningi á nýrri tónlist.