Kennarar
Bryndís Pálsdóttir, fiðla
Bryndís stundaði nám hjá Birni Ólafssyni, Guðnýju Guðmundsdóttur og Mark Reedman við Tónlistarskólann í Reykjavík og lauk þaðan einleikaraprófi 1984; lærði hjá Dorothy DeLay og Hyo Kang við The Julliard School of Music í New York, Bandaríkjunum og lauk þaðan BA prófi 1987 og Master of Music prófi 1988; sótti einkatíma í NY hjá Zinaida Gilels 1987-88 og í Amsterdam hjá Herman Krebbers 88-89. Hefur verið fiðluleikari í SÍ frá 1989. Tekið þátt í mörgum sýtningum Þjóleikhússins frá 1992; virkur þátttakandi í starfi Kammersveitar Reykjavíkur frá 1989 og hefur auk þess leikið með hljómsveit Íslensku Óperunnar, Íslensku hljómsveitinni, Caput hópnum og fleiri kammerhópum frá 1982. Fiðlukennari við Tónlistarskólann í Reykjavík frá 1989.


