Kennarar
Gunnar Kvaran, selló
Gunnar stundar auk fastra starfa umfangsmikið tónleikahald bæði heima og erlendis. Hann hefur haldið einleiks- og kammertónleika í mörgum Evrópulöndum, auk Bandaríkjanna og Kanada og m.a. komið fram í Wigmore Hall í Londan, Carnegie Hall í New York og í Beethoven Haus í Bonn. Gunnar hefur margsinnis leikið einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands, komið fram í útvarpi og sjónvarpi og allmargar hljómplötur og hljómdiskar hafa verið gefnir út með leik hans. Hann hlaut verðlaun úr sjóði Dr.Gunnars Thoroddsens árið 1990 fyrir tónlistarstörf og var valinn bæjarlistamaður Seltjarnarness árið 1996. mörg undanfarin sumur hefur hann ásamt konu sinni Guðnýju verið gestur á hinum ýmsu tónlistarhátíðum í BandarÌkjunum. Sumrin 1999 og 2000 var honum einnig boðið að kenna og leika á tónlistarhátíð Ì Grikklandi. . Í desember 2001 var honum boðið að koma fram ásamt Hauki Guðlaugssyni organista á sérstökum hátíðartónleikun í Vendrell á Spáni, fæðingarbæ Pablo Casals. Þann dag voru 125 ár liðin frá fæðingu meistarans.Gunnar er ásamt Peter Maté og Guðnýju Guðmundsdóttur meðlimur í Triíó Reykjavíkur.


