Kennarar
Hallfríður Ólafsdóttir, þverflauta
Hallfríður lauk einleikara- og blásarakennaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík 1988; hlaut Postgraduate Diploma frá Royal Northern College of Music í Manchester 1989 og Diploma of Advanced Studies frá Royal Academy of Music í London, Englandi 1991; stundaði einkanám hjá Alain Marion í París Frakklandi 1992. Hefur verið flautuleikari í Sinfóníuhljómsveit Íslands frá 1992, piccolóleikari 1997-1999 og fastráðinn leiðandi flautuleikari frá 1999; hefur leikið í lausamennsku við Þjóðleikhúsið, hljómsveit Íslensku Óperunnar og einnig með öllum helstu kammerhljómsveitum landsins; einn af stofnendum kammerhópsins Camerarctica. Kennari við Tónlistarskólann í Reykjavík frá 1997.


