kontrabassasnigill

 

Trompet

 

Klarinett

 

horn.fidla

 

 

Kennarar


Hlín Pétursdóttir Behrens, söngur

HlinPetursdottir Hlín Pétursdóttir Behrens lauk einsöngvaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík árið 1992 undir leiðsögn Sieglinde Kahmann og stundaði síðan framhaldsnám við óperudeild tónlistarháskólans í Hamborg. Veturinn 1994-95 var hún gestasöngvari við óperuhúsin í Stuttgart og Bern. Árin 1995-97 var Hlín fastráðin við Pfalztheater Kaiserslautern og við Staatstheater am Gärtnerplatz í München 1997-2004. Á þessum árum kom hún fram sem gestur í óperuhúsum víðsvegar um Þýskaland, auk þess að syngja í Austurríki, Sviss, Frakklandi og Svíþjóð og kynna íslenska tónlist á ljóða- og kirkjutónleikum. Hún hefur sungið öll helstu verk kirkjubókmenntanna. Meðal stærri tónleika eru Carmina Burana og Requiem Mozarts í tónlistarhöllinni í Hamborg, Messías í Hamborg og Strahlsund, c-moll messa Mozarts í Hamborg og Kaiserslautern og óperettugala í Fílharmóníunni í Berlín og í óperunni í Frankfurt. Hlín flutti heim haustið 2004 og kennir nú við Tónlistarskólann í Reykjavík og Tónlistarskóla Árnesinga. Á Íslandi hefur Hlín sungið hlutverk Musettu í La Bohème eftir Puccini, Chlorindu í Öskubusku eftir Rossini og Ännchen í Galdraskyttunni eftir Weber, auk þess að koma fram á ljóðakvöldum og kammertónleikum.