Kennarar
Hrefna Eggertsdóttir, meðleikur
Hrefna nam píanóleik við Tónlistarskólann í Reykjavík þar sem Arndís Steingrímsdóttir, Jón Nordal og Árni Kristjánsson voru aðalkennarar hennar. Framhaldsnám stundaði hún við Hochschule für Musik und Darstellende Kunst í Vínarborg hjá Klöru Harrer prófessor, Hans Kann prófessor og Harald Ossberger. Hún starfar nú sem kennari og píanóleikari við Tónlistarskólann í Reykjavík.


