Kennarar
Joseph Ognibene, horn
Joseph Ognibene er fæddur og uppalinn í Los Angeles, USA. Hann byrjaði að læra tónlist 7 ára aldri, fyrst á píano og siðan á horn í skólalúðarasveitinni. Hann útskrifaðist seinna cum laude frá Pomona College og fór svo til Þýskalands þar sem hann stundaði nám hjá Hermann Baumann við Folkwang Hochschule für Musik í Essen. Joseph Ognibene vann til verðlauna í alþjóðlegri tónlistarkeppni Vor í Prag 1978. Eftir framhaldsnám hjá Vincent De Rosa í Los Angeles kom Joseph til Íslands árið 1981 til þess að starfa með Sinfóníuhlómsveit Íslands. Hann hefur oft komið fram með SÍ sem einleikari og er mjög virkur í kammertónlist á Íslandi, einkum hjá Kammersveit Reykjavíkur. Hann er stofnmeðlimur Blásarakvintetts Reykjavíkur og hefur gert margar upptökur með þeim og SÍ á vegum BIS, Naxos og Chandos, auk þess að ferðast um allan heim. Joseph Ognibene kennir við Tónlistarskólann í Reykjavík og The Fairbanks Summer Arts Festival (Alaska). Hann kom fram sem einleikari á hornþinginu í Lahti sumar 2002.


