kontrabassasnigill

 

Trompet

 

Klarinett

 

horn.fidla

 

 

Flautukór

Aðalefni hvers hóptíma er rætt og æft og oftast er einnig samspil en auk þess eiga allir að leika sitt verk eða æfingu.

Sumum tímum er skipt eftir hópum en öllum er frjálst að mæta líka með öðrum hópum.

Flautukennarar Tónlistarskólans í Reykjavík hafa sérstakt fyrirkomulag á hljóðfærakennslunni sem þykir takast einstaklega vel. Einkatímar nemenda eru 45 mínútur í stað 60 mínútna en í staðinn fá nemendur vikulega tæknitíma í litlum hópum um hálftíma í senn. Áshildur Haraldsdóttir hefur umsjón með tæknitímunum þar sem áhersla verður lögð á markvissa vinnu í fingratækni en einnig verður tungutækni, öndun, líkamsstaða og tónn tekin fyrir. Raðað er í hópa eftir útkomu á stöðuprófi.

Að auki eru hóptímar eða "Masterclassar" haldnir í hverri viku og sér Hallfríður Ólafsdóttir um þá. Nemendum er skipt í tvo hópa og mætir hver hópur að jafnaði annan hvern mánudag en stundum saman. Dagskrá hóptímanna verður auglýst í næstu viku.

Með þessu fyrirkomulagi fá nemendur lengri kennslutíma, fá að hitta fleiri en einn flautukennara reglulega og læra jafnframt mikið af því að hlusta hver á annan í hóptímum.