Kontrapunktur
Inntökuskilyrði: Lokið hljómfræði I og fengið 8,00 á lokaprófi. Æskilegt er að nemendur stundi þessa námsgrein samhliða hljómfræði II en hafi að öðrum kosti lokið kontrapunkti og hljómfræði II áður en sótt er um hljómfræði III.
Kennd eru tvíradda skrif í stíl Palestrina. Æfðir eru hinir 5 hættir raddhreyfingar og síðan frjáls tvíradda kontrapunktur. Þá eru tvíradda skrif með eftirlíkingum kennd og nokkrir tvíradda kanónar eftir Lassus greindir.
Kennt í 2 klst. á viku í eitt ár. Lágmark 4 nemendur í bekk. Hámark 10.
Þriðjudagar 17:30-19:30 í stofu 11
kennari: Tryggvi M. Baldvinsson

