Umsóknir
Vinsamlegast sendið upplýsingar í tölvupósti til tono@tono.is með upplýsingum um eftirfarandi: nafn og kennitölu nemanda og forráðamanns, lögheimili, síma, farsíma, aðalnámsgrein, óskir um kennara og undirbúningsmenntun í tónlist. Einnig er hægt að sækja um skólavist á skrifstofu skólans, Skipholti 33. Auk þess að sækja um hjá skólanum þurfa nemendur að sækja um skólavist á Rafrænni Reykjavík.
Skólinn reynir að uppfylla óskir nemanda um kennara í aðalnámsgrein, en áskilur sér rétt til að ráðstafa umsókninni til annars kennara ef þörf krefur. Innifalið er nám í tónfræðigreinum.
Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu skólans í síma 553 0625 milli kl. 13-16 á virkum dögum.

